Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
   fös 06. mars 2026 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England um helgina - Nær Liverpool fram hefndum?
Mynd: EPA
16-liða úrslitin í enska bikarnum fara fram um helgina en það er áhugaverður leikur strax í kvöld.

Wolves fær Liverpool í heimsókn en liðin mættust á þriðjudaginn síðastliðinn þar sem Wolves vann óvæntan sigur í úrvalsdeildinni.

Arsenal heimsækir Mansfield, sem leikur í C-deildinni, á morgun. Chelsea heimsækir Hollywood félagið Wrexham og þá er úrvalsdeildarslagur milli Newcastle og Man City.

Fulham og Southampton eigast við í fyrsta leiknum á sunnudaginn. Port Vale, sem leikur í C-deild, fær Sunderland í heimsókn og Leeds og Norwich mætast.

föstudagur 6. mars
20:00 Wolves - Liverpool

laugardagur 7. mars
12:15 Mansfield Town - Arsenal
17:45 Wrexham - Chelsea
20:00 Newcastle - Man City

sunnudagur 8. mars
12:00 Fulham - Southampton
13:30 Port Vale - Sunderland
16:30 Leeds - Norwich
Athugasemdir
banner
banner