,,Það var augljóst að við mættum ekki til leiks og Afturelding voru betri á öllum sviðum og gengu á lagið," sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari HK eftir 4-2 tap úti gegn Aftureldingu í toppslag 2. deildar í dag.
,,Þetta hlýtur að vera hugarfarslegs eðlis, við vorum ólíkir sjálfum okkur og töpuðum öllum einvígum, skallaeinvígum og Afturelding nýtti sér það og leit gríðarlega vel út."
,,Við reynum að koma til baka í seinni hálfleik en því miður var þetta kannski 25 mínútna kafli og við náðum tveimur mörkum og nálægt því að ná þriðja markinu. Ég hefði viljað sjá hvernig leikurinn hefði þróast þá, en fyrri hálfleikurinn var það slakur að við áttum ekkert skilið."
,,Það munaði ekki miklu að þriðja markið kæmi, það var ákveðin uppsveifla og ég var gríðarlega ánægður með þá menn sem komu inn í leikinn í seinni hálfleik. Það kom mikill fightingur með þeim og eiginlega nýtt lið til leik. En 3-0, og svo 4-0 forskot var of mikið af því góða til að ná að jafna en við reyndum og vorum nálægt því."
Nánar er rætt við Gunnlaug í sjónvarpinu hér að ofan en fyrir umferðina voru bæði lið á toppnum með 19 stig en HK betra markahlutfall. HK liðið mætti slakt í fyrri hálfleikinn en mun betra í þann síðari.
,,Ég reyndi að vekja menn í hálfleik enda var þetta alveg hörmung í fyrri hálfleik. Við höfum verið að hafa áhyggjur af því að slaka á í hálfleik eftir að hafa verið komnir í góða forystu gegn liðum í neðri hlutanum. En núna mætum við ekki til leiks í toppleik og það er óafsakanlegt."
























