Björn Kristinn Björnsson, þjálfari HK/Víkings í Pepsi-deild kvenna, var grautfúll er liði tapaði 4-3 fyrir Breiðablik í fyrstu umferð í kvöld í dramatískum leik.
,,Gríðarlega svekkjandi, alveg svakalega. Það er ekkert sem getur lýst því að fá á sig svona slys eins og gerðist þarna hjá okkur, þetta á ekki að gerast," sagði Björn Kristinn.
,,Við vissum nákvæmlega hvað við ætluðum að gera. Við ætluðum að leyfa þeim að hafa boltann hjá sér og setja svo allt í þegar við fengum færi á, þannig við lögðum leikinn þannig að við myndum pressa þétt og þangað til að það væri búið myndum við falla niður og leyfa þeim að hafa boltann."
,,Ég veit ekki hvað gerist. Þetta er í fyrsta skiptið sem þær eru í úrvalsdeild í langan tíma, kornungir leikmenn og við vorum ósáttar við þriðja marki þar sem hún var ekki réttstæð þegar fyrirgjöfin kemur og það var sárt og kannski ætluðum við að verja okkar hlut."
,,Þetta var leikur sem við ætluðum að vinna hérna heima og það var ekkert annað í spilunum en að vinna þennan leik. Ég er ósáttur og mér fannst sigurinn ekki sanngjarn," sagði hann ennfremur.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.






















