Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 18:28
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Skýr skilaboð í toppbaráttunni
Mynd: Middlesbrough
Mynd: Middlesbrough FC
QPR 0 - 4 Middlesbrough
0-1 David Strelec ('20 )
0-2 Alan Browne ('68 )
0-3 Hayden Hackney ('72 )
0-4 Tommy Conway ('88 , víti)

Middlesbrough sendi skýr skilaboð í toppbaráttu Championship deildarinnar með fjögurra marka sigri á útivelli gegn QPR.

Gestirnir frá Middlesbrough voru sterkari aðilinn bæði í fyrri og síðari hálfleik og skoraði David Strelec eina markið í fyrri hálfleik.

Alan Browne og Hayden Hackney gerðu út um viðureignina með sitthvoru markinu á fjögurra mínútna kafla áður en Tommy Conway setti fjórða og síðasta mark leiksins úr vítaspyrnu.

Middlesbrough er í öðru sæti deildarinnar, sem veitir þátttökurétt í ensku úrvalsdeildina fyrir næstu leiktíð, með 69 stig eftir 36 umferðir. Liðið er fjórum stigum fyrir ofan Millwall og fimm fyrir ofan Ipswich sem á leik til góða.

Middlesbrough er þá fimm stigum á eftir toppliði Coventry.

QPR siglir lygnan sjó um miðja deild, tíu stigum frá umspilsbaráttunni og tólf stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar tíu umferðir eru eftir.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 36 22 8 6 74 38 +36 74
2 Middlesbrough 36 20 9 7 58 35 +23 69
3 Millwall 36 19 8 9 50 41 +9 65
4 Ipswich Town 35 18 10 7 61 35 +26 64
5 Hull City 36 18 6 12 57 52 +5 60
6 Wrexham 35 15 12 8 54 45 +9 57
7 Derby County 36 15 9 12 54 47 +7 54
8 Southampton 35 14 11 10 57 46 +11 53
9 Watford 35 13 12 10 45 41 +4 51
10 Bristol City 36 14 8 14 48 46 +2 50
11 Sheffield Utd 36 15 4 17 51 49 +2 49
12 Birmingham 36 13 10 13 46 47 -1 49
13 Preston NE 36 12 13 11 42 43 -1 49
14 Swansea 36 14 7 15 42 43 -1 49
15 Stoke City 36 13 8 15 39 36 +3 47
16 QPR 36 13 8 15 46 58 -12 47
17 Norwich 35 13 6 16 47 44 +3 45
18 Charlton Athletic 36 11 11 14 34 44 -10 44
19 Portsmouth 35 10 10 15 35 45 -10 40
20 Blackburn 36 10 9 17 34 47 -13 39
21 West Brom 36 9 9 18 35 53 -18 36
22 Leicester 36 10 11 15 48 57 -9 35
23 Oxford United 36 8 11 17 34 48 -14 35
24 Sheff Wed 36 1 8 27 22 73 -51 -7
Athugasemdir
banner