Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   lau 28. mars 2026 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Eimskip
Orri skoraði tvö gegn Kanada.
Orri skoraði tvö gegn Kanada.
Mynd: KSÍ
Ísland gerði 2-2 jafntefli gegn Kanada ytra í æfingaleik í dag. Fótbolti.net ræddi við Orra Stein Óskarsson, sem skoraði bæði mörk Íslands, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Kanada 2 -  2 Ísland

„Blendnar tilfinningar. Persónulega mjög glaður að vera kominn aftur og byrja svona. Líka svekkjandi að hafa ekki náð að klára leikinn jafnvel þó að 2-2 úti á móti Kanada séu ekki verstu úrslit í heimi þá viljum við samt klára svona leiki og við vitum að við eigum að gera það," sagði Orri Steinn.

Hann skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleik en Jonathan David skoraði bæði mörk Kanada úr vítum í seinni hálfleik.

„Þeir voru búnir að elta okkur allan leikinn og erfitt að spila svo stíga þeir upp um gír í seinni hálfleik og við náum ekki að svara nógu vel sem gerir það að verkum að þeir ná að koma leiknum í sínar eigin hendur."

Orri Steinn er í landsliðshópnum í fyrsta sinn í dágóðan tíma en hann hefur verið ansi óheppinn með meiðsli í kringum landsliðsverkefni.

„Þegar maður kemur til baka þarf ekki langan tíma til að aðlagast. Maður þekkir þessa stráka eins og lófan á hendinni sinni. Maður efast ekki um hvað þeir eru að fara gera, mér leið eins og maður hafi aldrei farið. Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut að koma hingað og spila með þessum strákum og fá að vera partur af þessu, mjög þakklátur," sagði Orri.

Hann skoraði fyrra markið þegar hann náði boltanum eftir arfaslaka sendingu til baka frá varnarmanni Kanada og seinna markið eftir laglegan undirbúning Mikaels Egils Ellertssonar.

„Þetta er einn af mínum styrkleikum, að vera rólegur undir pressu. Þó maður fái aðeins meiri tíma getur þetta verið meira stressandi. Þetta er eitthvað sem ég hef æft frá því ég var lítill, það er undir mér komið að nýta svona færi," sagði hann um fyrra markið.

„Frábær sending hjá Mikka. Upp í nær, það gerist varla flottara en það," sagði Orri um seinna markið.
Slapp
banner
banner