Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 20:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kári orðinn þreyttur á ástandinu - „Lekum mörkum eins og þau séu að detta úr tísku"
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Ísland gerði 2-2 jafntefli gegn Kanada í æfingaleik ytra í dag. Orri Steinn Óskarsson skoraði tvö fyrstu mörkin í leiknum en Jonathan David jafnaði metin með mörkum úr vítaspyrnum.

Kári Árnason og Bjarni Guðjónsson ræddu um leikinn í umfjöllun Sýnar Sport eftir leikinn. Kári hefur mikið talað um slakan varnarleik liðsins og það var engin breyting á því í kvöld.

Lestu um leikinn: Kanada 2 -  2 Ísland

„Ég er að verða svolítið þreyttur á sjálfum mér að tala um þetta. Við lekum mörkum eins og þau séu að detta úr tísku. Við erum búnir að fá á okkur næstum því 2,5 mörk að meðaltali í leik," sagði Kári.

Mikael Egill Ellertsson gerðist brotlegur í fyrra vítinu en Kári og Bjarni voru í vafa um að um vítaspyrnu væri að ræða.

„Þetta er skólabókardæmi hvernig þú átt ekki að verjast þríhyrningaspili Mikael. Ég vona að þú horfir á þetta aftur. Hann tekur augun af manninum og færir þau yfir á boltann og veit ekkert hvar maðurinn er og svo fær hann boltann. Að kunna ekki að verjast þríhyrningaspili á þessu stigi er ekki í boði," sagði Kári.

„Við erum búnir að finna vörnina. Það þarf líka að drilla hana. Við erum búnir að fá á okkur nánast tvö og hálft mark í leik að meðaltali, við lekum mörkum hægri vinstri, það þarf eitthvað að gerast það er ljóst. Hvort sem það er að drilla vörnina á æfingum eða breyta leikskipulaginu. Þeir virðast ekki ráða við það sem er í gangi,"

Arnar Gunnlaugsson vill spila skemmtilegri fótbolta en íslenska liðið var þekkt fyrir að berjast mikið og sýndi sterkan varnarleik þegar það var upp á sitt besta.

„Það er sennilega rétt hjá Arnari að það hentar þessu liði ekki endilega að berjast um seinni bolta og einhver djöfulgangur en ég held að það sé líklegri uppskrift af árangri," sagði Kári.

„Við þurfum að finna leið að því hvernig við verjum vörnina okkar betur. Við lendum í því að við verjum vörnina ekki nægilega vel og það leysist með því að fá sexu inn á miðjuna. Annað getur hjálpað okkur og það er það sem einkenndi liðið sem Kári er að tala um. Þar var enginn að velkjast í vafa um fyrir hvað þeir stæðu, það var alveg á hreinu," sagði Bjarni.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner