Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   lau 28. mars 2026 18:05
Brynjar Óli Ágústsson
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Kvenaboltinn
Ian Jeffs, þjálfari Breiðablik
Ian Jeffs, þjálfari Breiðablik
Mynd: Breiðablik

''Tilfinning er bara mjög góð. Þetta var erfiður leikur og það var ekki rosalega gott veður og hafði það svolítið áhrif á leikinn í dag,'' segir Ian Jeffs, þjálfari Breiðablik, eftir 4-1 sigur gegn Víking í úrslitaleik Lengjubikarsins.


Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  1 Víkingur R.

Breiðablik hafa skorað mikið af mörkum í Lengjubikarnum og sigruðu alla nema einn leik.

''Þetta byrjaði erfitt, við byrjuðum með tapi á móti Val og á þeim tíma var svolítið erfitt hjá okkur. Við vorum að reyna koma leikmenn í stand fyrir Evrópu leikina og við tókum frí í desember. Við vorum alltaf hinu liðinu til að byrja með í Lengjubiukarnum. Við höfum hægt og rólega þróað okkar leik og ég er mjög ánægður með hvernig leikmenn hafa tekið á mót þeim skilaboðum,''

Ian var spurður út í hvað honum finnst að Agla María var ekki valin í landsliðshópinn.

„Ég ætla ekki að tjá mig um það. Steini má velja bara hópinn sem hann vill hafa. Hún er búin að vera frábær fyrir okkur,''

Breiðablik fara inn í komandi tímabil með nýjan þjálfara og hafa misst nokkra lykil leikmenn frá því í fyrra.

„Það vita allir um að við erum búinn að missa marga leikmenn, en mér finnst leikmennirnir sem eru að koma til okkar og leikmenn sem hafa fengið stærra hlutverk eru búnar að stíg gríðarlega mikið upp og mér finnst vera góður taktur í liðinu. Það er góð blanda af ungum leikmönnum sem eru að byrja í þessum og leikmenn mið mikla reynslu. Ég er bara ánægður hvernig hópurinn lítur út, ef ég gæti bætt einhverju við þá væri það frábært.''

Spurt var Ian um hvort Breiðablik sé að sækja einhverja leikmenn.

„Það er að koma markmaður til okkar, hún er að koma til landsins á mánudaginn og gefur samkeppni. Við erum búin að klára Lengjubikarinn bara með Herdísi og það er ekki hægt að fara inn í mót með einn markmann. Það er að koma inn tilkynning kannski í dag eða á morgun,''

Hægt er horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan


Slapp
banner
banner