Botnlið Wolves tekur á móti Manchester United í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Rob Edwards þjálfari, sem tók við Úlfunum fyrir tæpum mánuði, gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði naumlega á heimavelli gegn Nottingham Forest í síðustu viku.
Ki-Jana Hoever kemur inn fyrir miðjumanninn öfluga Joao Gomes og þá endurheimtir Ladislav Krejcí byrjunarliðssætið sitt í varnarlínunni á kostnað Jackson Tchatchoua.
Ruben Amorim gerir aðeins eina breytingu frá jafnteflinu gegn West Ham, þar sem Mason Mount kemur inn í fremstu víglínu fyrir Joshua Zirkzee sem sest á bekkinn.
Wolves: Johnstone, Mosquera, Agbadou, Toti, Krejcí, Andre, Hoever, Wolfe, Arias, Larsen, Bellegarde.
Varamenn: Sa, H.Bueno, S.Bueno, Hwang, Arokodare, Chirewa, Lopez, Mane, Tchatchoua.
Man Utd: Lammens, Mazraoui, Heaven, Shaw, Amad, Casemiro, Fernandes, Dalot, Mbeumo, Mount, Matheus Cunha.
Varamenn: Bayindir, Martinez, Zirkzee, Malacia, Dorgu, Yoro, Ugarte, Mainoo, Lacey.
Athugasemdir


