Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 17:38
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Hincapie stýrði hornspyrnu í eigið net
Mynd: EPA
Staðan í leik Arsenal og Chelsea á Emirates er 1-1 en gestirnir jöfnuðu metin eftir hornspyrnu undir lok fyrri hálfleiksins.

Franski varnarmaðurinn William Saliba kom Arsenal-mönnum yfir eftir hornspyrnu á 21. mínútu. Hornspyrnan kom á fjær á Gabriel sem stangaði hann inn á Saliba sem skoraði.

Chelsea svaraði undir lok hálfleiksins og felldi Arsenal-menn á eigin bragði.

Liðið átti hornspyrnu nokkrum sekúndum áður sem David Raya bjargaði aftur fyrir endamörk, en hann kom engum vörnum við í seinni spyrnunni sem Piero Hincapie stýrði í eigið net.

Allt hnífjafnt í Lundúnum en markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér
Athugasemdir
banner