Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 18:12
Brynjar Ingi Erluson
Daníel Leó lagði upp sigurmarkið og Elías maður leiksins - Grátlegt jafntefli hjá Hirti
Daníel Leó lagði upp sigurmark SönderjyskE
Daníel Leó lagði upp sigurmark SönderjyskE
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hjörtur Hermanns og félagar í Volos voru eflaust svekktir með að hafa ekki landað sigri á AEK
Hjörtur Hermanns og félagar í Volos voru eflaust svekktir með að hafa ekki landað sigri á AEK
Mynd: Volos
Daníel Leó Grétarsson lagði upp sigurmark SönderjyskE í 1-0 sigri liðsins á OB í dönsku úrvalsdeildinni í dag og þá hélt Elías Rafn Ólafsson hreinu í markalausu jafntefli Midtjylland gegn Bröndby.

FCK tapaði óvænt fyrir Randers, 2-1, eftir mikla dramatík á Parken, en gestirnir skoruðu sigurmarkið úr vítaspyrnu seint í uppbótartíma.

Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK á meðan Rúnar Alex Rúnarsson var á bekknum.

FCK er í 7. sæti deildarinnar með 29 stig en Randers í 9. sæti með 26 stig.

Elías Rafn hélt hreinu og var valinn maður leiksins í markalausa jafnteflinu hjá Midtjylland gegn Bröndby. Hann átti margar mikilvægar vörslur.

Þetta gerði lítið fyrir Midtjylland sem er í öðru sæti, fjórum stigum á eftir toppliði AGF sem vann Vejle, 2-1. Tómas Óli Kristjánsson var ónotaður varamaður hjá AGF.

Daníel Leó Grétarsson lagði upp sigurmarkið SönderjyskE fyrir Matthew Hoppe á 28. mínútu í 1-0 sigri á OB. SönderjyskE er að spila frábærlega á þessu tímabili en liðið er í 3. sæti með 36 stig.

Daníel Freyr Kristjánsson kom inn af bekknum hjá Fredericia sem marði 2-1 sigur á Silkeborg. Fredericia er í 10. sæti með 24 stig.

Ísak Andri Sigurgeirsson kom einnig inn á sem varamaður er Viborg vann 2-1 sigur á Nordsjælland. Daníel Ingi Jóhannesson var ónotaður varamaður hjá Nordsjælland. Viborg er í 5. sæti með 33 stig en Nordsjælland í sætinu fyrir neðan með 31 stig.

Hjörtur Hermannsson stóð vaktina í vörn Volos sem gerði svekkjandi 2-2 jafntefli gegn titilbaráttuliði AEK. Volos, sem hafði ekki fagnað neitt sérstaklega góðu gengi í síðustu leikjum, komst tvisvar yfir gegn AEK, en fékk á sig svekkjandi jöfnunarmark á síðustu sekúndum leiksins.

Volos er í 9. sæti með 27 stig en AEK í öðru sæti með 53 stig.

Logi Hrafn Róbertsson byrjaði þá sinn fyrsta leik með Värnamo sem tapaði fyrir Kalmar, 2-1, í riðlakeppni sænska bikarsins. Värnamo er í 3. sæti riðilsins með eitt stig eftir tvo leiki. Srdjan Tufegdzic er þjálfari liðsins.
Athugasemdir
banner
banner