Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ráðleggur Chelsea að kaupa Nunez - „Eins og þegar Bergkamp fór til Inter“
Darwin Nunez
Darwin Nunez
Mynd: EPA
Gæti Nunez passað inn í liðið hjá Rosenior?
Gæti Nunez passað inn í liðið hjá Rosenior?
Mynd: EPA
Chelsea á að kaupa úrúgvæska framherjann Darwin Nunez frá Al Hilal en þetta segir Marcel Desailly, fyrrum leikmaður Chelsea og franska landsliðsins við FootItalia.

Liverpool seldi Nunez til Al Hilal síðasta sumar. Hann var í uppáhaldi hjá mörgum stuðningsmönnum Liverpool þrátt fyrir að hafa farið illa með aragrúa af dauðafærum.

Nunez lagði mikið á sig og skoraði oft frábær mörk, en var farinn að missa sæti sitt í liðinu og var seldur til Al Hilal.

Desailly, sem spilaði með Chelsea og varð heimsmeistari með Frökkum árið 1998, segir að Nunez sé fullkominn leikmaður fyrir Chelsea eða Manchester United.

„Ég myndi ráðleggja Chelsea að kaupa Nunez. Hann er ótrúlega góður og klár leikmaður. Hann þarf bara rétta umhverfið til þess að standa sig. Þegar Liverpool áttaði sig á hæfileikum hans vissu þeir tölfræðilega hvað þeir voru með í höndunum.“

„En þegar þú byrjar ekki á bestu nótunum þá hverfur sjálfstraustið og tillitssemin frá öllum í kringum þig. Þetta er eins og þegar Dennis Bergkamp fór til Inter. Það fór allt úrskeiðis eða þegar Roberto Carlos fór þangað á yngri árum. Skaut boltanum upp í stúku og ekkert sjálfstraust til staðar. Það gerðist fyrir Nunez hjá Liverpool, en gæðin eru enn til staðar. Hann er núna hjá Al Hilal og skorað sex mörk í sextán leikjum sem er alls ekki svo slæmt.“

„Ég er ánægður að heyra að hann vilji snúa aftur í Evrópuboltann sem sýnir að peningar eru ekki allt. Félag eins og Chelsea, eða nýja Manchester United væri besti kosturinn fyrir hann. Darwin þarf að vera umvafinn fastmótuðum leikmönnum með sjálfstraust sem vita að þeir munu spila hverja einustu helgi og gefa honum boltann við fyrsta tækifæri. Það eru smáu atriðin eins og þegar hann tekur hlaupið þá þarf hann að fá boltann um leið annars mun sjálfstraustið hverfa.“

„Við vorum í svipaðri stöðu með Frank Lampard sem var magnaður leikmaður, en stundum leitaði hann að öðrum möguleikum í stað þess að spila boltanum strax á framherjann. Maður sá framherjana tapa taktinum. Nunez þarf að fá boltann strax, en hann er samt gæðaleikmaður og enn ungur,“
sagði Desailly.
Athugasemdir
banner