Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 12:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kom í vetur en hefur yfirgefið Vestra
Lengjudeildin
Mynd: EPA
Pape Abou Cisse hefur yfirgefið Vestra en hann gekk til liðs við félagið fyrr í vetur. Vestri greinir frá því að brottförin er af persónulegum ástæðum.

Cisse er þrítugur miðvörður en það var mikil spenna fyrir honum þar sem hann er gríðarlega reynslumikill.

Hann spilaði m.a. með Ajaccio og St. Étienne í Frakklandi. Hann lék einnig í sex ár fyrir Olympiakos í Grikklandi. Pape á að baki 13 leiki í Meistaradeild Evrópu og 28 leiki í Evrópudeildinni. Þá á hann 16 landsleiki að baki fyrir Senegal.

„Pape er frábær leikmaður og ekki síðri manneskja. Hann tók strax yfir sem leiðtogi í hópnum og verður mikil eftirsjá af honum. Við þökkum Pape fyrir gott samstarf og óskum honum velfarnaðar í næstu verkefnum," segir í tilkynningu frá Vestra.


Athugasemdir
banner
banner
banner