Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir það ekki vera neitt leyndarmál að föstu leikatriðin séu mikilvægur partur af leik liðsins, en þetta sagði hann eftir 2-1 sigur liðsins á Chelsea á Emirates-leikvanginum í kvöld.
Arsenal skoraði bæði mörk sín eftir hornspyrnu og þá gerði Chelsea mark sitt sömuleiðis eftir hornspyrnu.
Arteta var gríðarlega ánægður með framlag liðsins.
„Ég er í skýjunum. Leikmennirnir spiluðu ótrúlega vel og lögðu svo mikið í leikinn. Eftir frábæra sigurinn á Tottenham þá vissum við að þetta yrði enn erfiðari leikur,“ sagði Arteta.
Ekkert lið hefur skorað fleiri mörk úr föstum leikatriðum en Arsenal og eru þau eitt mikilvægasta vopnið í vopnabúri liðsins.
„Horfðu á gæðin á vellinum, algerlega mögnuð, en föstu leikatriðin gerðu gæfumuninn. Þeir eru svo góðir í þessu og það erum við líka.“
„Þau eru ótrúlega mikilvæg. Chelsea er annað besta liðið í þessu og gert einu marki minna. Horfðu á gæðin sem þeir eru með. Við höfum tapað stigum gegn löngum innköstum og undanfarið höfum við ekki verið að skora úr mörgum föstum leikatriðum. Við gerðum það í dag og það er geggjað að hafa þennan kost.“
„Það getur verið alger martröð að verjast gegn þessu. Við reynum að finna lausnir í öllum stöðum, en þegar þetta er að gerast eru þeir svo grimmir, ýtandi, skilvirkir og erfiðir að eiga við. Þetta er rosalega erfitt.“
Declan Rice fór meiddur af velli í síðari hálfleiknum en Arteta veit ekki alveg stöðuna á honum.
„Hann fann fyrir óþægindum og þurfti að fara af velli,“ sagði Arteta.
Athugasemdir


