Daniel Farke, stjóri Leeds United, sá rauða spjaldið eftir að flautað var til leiksloka í 1-0 tapinu gegn Manchester City á Elland Road í gær.
Farke æddi inn á völlinn í leikslok og í átt að Peter Bankes, dómara leiksins.
Þjóðverjinn var ósáttur við margar ákvarðanir í leiknum og taldi Leeds hafa átt að fá víti þegar boltinn virtist hafa í höndina á Matheus Nunes. Þá var hann einnig óánægður með þegar Rayan Cherki steig á Ilian Gruev.
Farke æsti sig full mikið við dómarann og uppskar rautt spjald fyrir, en Eddie Riemer, aðstoðarmaður Farke, ræddi málið við YahooSports eftir leikinn.
„Ég held að hann hafi bara átt stutt spjall við hann. Það voru atvik í leiknum og mjög augljós tímasóun. Okkur fannst hann geta dæmt hornspyrnu í nokkur skipti og svo fengu þeir nokkur gul spjöld. Hann hleypur á völlinn og segir: 'Til hvers?' og er síðan rekinn af velli, en kannski var það af því hann æðir full harkalega að honum. Það gerist sjaldan að hann sé rekinn af velli og held ég í alvöru að þetta sé í annað skiptið, en fyrra rauða spjaldið var þegar hann fagnaði yfir sig þegar við komumst upp um deild. Mér finnst þetta ansi strangur dómur,“ sagði Riemer.
Karl Darlow, markvörður Leeds, þurfti að róa Farke niður eftir að hann sá rauða spjaldið eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.
DANIEL FARKE RED CARD pic.twitter.com/15536vOd94
— KinG £ (@xKGx__) February 28, 2026
Athugasemdir



