Skammarlegt atvik átti sér stað í leik Leeds United og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær er stuðningsmenn bauluðu er leikurinn var stöðvaður í nokkrar mínútur.
Leikurinn var stöðvaður svo þeir sem iðka múslimatrú gætu brotið föstu.
Fastan er brotin við sólsetur en þeir mega ekki borða frá sólarupprás og fram að sólsetri. Enska úrvalsdeildin hefur heimilað að stöðva kvöldleiki til þess að brjóta föstu, en það féll ekki í kramið hjá stuðningsmönnum á Elland Road í gær.
Margir þeirra bauluðu meðal annars á þá Rayan Cherki og Rayan Ait-Nouri, sem eru báðir múslimar, en Guardiola skaut til baka á stuðningsmennina.
Þessar reglur eiga ekki við í öllum deildum, eins og í Frakklandi, þar sem portúgalski markvörðurinn Anthony Lopes gerði sér upp meiðsli til þess að múslimskir liðsfélagar hans gætu brotið föstu, en staðan er önnur á Englandi.
„Þetta er nútímaheimur, ekki satt? Þú sérð hvað er að gerast í heiminum í dag. Virðið trúarbrögð og fjölbreytileika, það er akkúrat málið. Enska úrvalsdeildin segir að þú getur fengið eina eða tvær mínútur til þess að brjóta föstu. Þannig er það.“
„Auðvitað vita leikmennirnir það. Við tókum eitthvað af vítamínum með okkur því Cherki og Ait-Nouri borðuðu ekki í dag. Það var ekkert meira en það. Spurningin er, geta þeir gert það eða ekki? Hvað er vandamálið?,“ sagði Guardiola og spurði.
Athugasemdir


