Antoine Semenyo var bestur hjá Manchester City í 1-0 sigrinum á Leeds á Elland Road í dag. Sky Sports heldur utan um einkunnir leikmanna úr leiknum.
Gabriel Gudmundsson, Ethan Ampadu, James Justin og Karl Darlow voru bestir hjá Leeds með 7 í einkunn.
Man City var með marga góða. Semenyo, sem kom frá Bournemouth í janúarglugganum, var bestur. Hann gerði sigurmarkið mikilvæga gegn Leeds.
Hann fær 8 eins og Rodri, Rayan Ait-Nouri og Rayan Cherki. Góður leikur hjá Man City sem er aðeins tveimur stigum frá toppliði Arsenal.
Leeds: Darlow (7), Bogle (6), Justin (7), Rodon (6), Struijk (6), Gudmundsson (7), Ampadu (7), Gruev (6), Stach (6), Aaronson (6), Calvert-Lewin (6)
Varamenn: James (6), Gnonto (6), Bijol (6), Nmecha (6)
Man City: Donnarumma (7), Nunes (7), Dias (7), Guehi (7), Ait Nouri (8), Rodri (8), Silva (7), O'Reilly (7), Marmoush (7), Cherki (8), Semenyo (8)
Athugasemdir


