Hákon Rafn Valdimarsson er búinn að fá þrjú mörk á sig gegn Burnley í leik sem er núna í gangi í ensku úrvalsdeildinni.
Enginn draumaleikur hjá Hákoni til þessa þó hann hafi lítið getað gert í þessum mörkum. Það hjálpar ekki að liðsfélagi hans, Michael Kayode, er búinn að setja boltann tvisvar í eigið net.
Enginn draumaleikur hjá Hákoni til þessa þó hann hafi lítið getað gert í þessum mörkum. Það hjálpar ekki að liðsfélagi hans, Michael Kayode, er búinn að setja boltann tvisvar í eigið net.
Fyrsta mark Burnley var skráð á Kayode en ekki annað markið þó boltinn hafi farið af honum.
„Kayode! Hvaða þvæla er þetta. Hættu nú. Hausinn hans á leið á öll píluspjöld á Seltjarnarnesi. Bæði skotin á leið lengst fram hjá. Skráum þetta sem clean sheet so far hjá Mr. Valdimarsson," skrifaði Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV, á X-ið en svo bætti Zian Flemming við þriðja marki Burnley.
Kayode! Hvaða þvæla er þetta. Hættu nú. Hausinn hans á leið á öll píluspjöld á Seltjarnarnesi. Bæði skotin á leið lengst fram hjá. Skráum þetta sem clean sheet so far hjá Mr. Valdimarsson
— Jói Ástvalds (@JoiPall) February 28, 2026
Athugasemdir


