Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   mán 02. mars 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Carrick jafnaði met Postecoglou
Mynd: EPA
Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, jafnaði met ástralska þjálfarans Ange Postecoglou með 2-1 endurkomusigrinum á Crystal Palace í gær.

Carrick tók við Man Utd eftir að Ruben Amorim var rekinn en hann mun stýra liðinu út tímabilið.

Hann hefur sótt 23 stig úr fyrstu níu deildarleikjum sínum sem stjóri United.

Þar jafnaði Carrick met Ange Postecoglou sem gerði slíkt hið sama með Tottenham árið 2023.

Postecoglou var látinn fara frá Tottenham á síðasta ári, aðeins nokkrum vikum eftir að hafa gert liðið að Evrópudeildarmeistara, en ástæðan fyrir brottrekstrinum var slakt gengi liðsins í deildinni sem rétt slapp við fall.


Athugasemdir
banner