Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 28. febrúar 2026 23:08
Brynjar Ingi Erluson
Vítaklúður Ronaldo kom ekki að sök
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo og Al Nassr unnu 3-1 sigur á Al Fayha í sádi-arabísku úrvalsdeildinni í dag. Ronaldo klikkaði á vítapunktinum í fyrri hálfleiknum.

Ronaldo skoraði 965. markið á ferlinum í síðasta leik og fékk tækifærið til að bæta við töluna.

Al Nassr fékk vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum en Ronaldo setti boltann framhjá markinu.

Heimamenn í Al Fayha komst yfir undir lok hálfleiksins, en í síðari hálfleiknum skoruðu Sadio Mane, Abdullah Al Hamdan og þá gerði heimaliðið eitt sjálfsmark.

Al Nassr heldur því toppsætinu með 61 stig, tveimur meira en Al Ahli sem er í öðru sæti.


Athugasemdir
banner