Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. febrúar 2026 23:01
Brynjar Ingi Erluson
Davíð og Hörður í tapliðum - Tómas Bent færist nær titlinum
Tómas Bent er í góðum málum í Skotlandi
Tómas Bent er í góðum málum í Skotlandi
Mynd: Hearts/Skjáskot
Júlli Magg byrjaði í bikarsigri Elfsborg
Júlli Magg byrjaði í bikarsigri Elfsborg
Mynd: Elfsborg
Fjölmargir Íslendingar voru á ferðinni í Evrópuboltanum í dag.

Davíð Kristján Ólafsson byrjaði hjá AEL Larissa sem tapaði fyrir OFI Crete, 3-0, í grísku úrvalsdeildinni. Larissa er í 12. sæti með 21 stig þegar þrír leikir eru eftir af hefðbundinni tveggja umferða deild.

Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn í vörninni hjá Levadiakos sem tapaði fyrir Kifisia, 1-0, á útivelli. Levadiakos er að ganga í gegnum slæman kafla og er nú búið að setja baráttuna um 4. sætið í hendur Panathinaikos.

Levadiakos er sem stendur í 4. sæti, þremur stigum meira en Panathinaikos sem á hins vegar leik til góða. Levadiakos á enn möguleika, en til þess þarf liðið einmitt að vinna Panathinaikos þegar liðin mætast í Levadia um næstu helgi.

Tómas Bent Magnússon var á miðjunni hjá Hearts sem marði 1-0 sigur á Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni.

Mikilvægt hjá Tómasi og félögum sem eru á toppnum með 63 stig, sjö stigum meira en Rangers sem á leik til góða. Eyþór Martin Björgólfsson kom inn af bekknum í 2-0 sigri Motherwell á Dundee United.

Motherwell er í góðri stöðu um Evrópusæti en liðið er í 4. sæti með 53 stig.

Brynjar Ingi Bjarnason lék síðustu mínúturnar er Greuther Furth gerði 1-1 jafntefli við Schalke í þýsku B-deildinni. Greuther Furth er áfram á botninum með 23 stig á meðan Schalke er á toppnum.

Stefán Teitur Þórðarson spilaði síðustu mínúturnar í 1-0 sigri Hannover á Arminia Bielefeld. Hannover er í 5. sæti með 45 stig eftir 24 leiki.

Sigurður Bjartur Hallsson byrjaði í fremstu víglínu hjá Merida sem gerði 1-1 jafntefli við varalið Celta Vigo í C-deildinni á Spáni.

Gott stig hjá Sigurði og hans mönnum sem eru í 5. sæti A-riðils með 39 stig.

Andri Fannar Baldursson var á miðjunni hjá Kasimpasa sem tapaði fyrir Rizespor, 3-0, í tyrknesku úrvalsdeildinni. Kasimpasa er í 16. sæti með 20 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.

Guðlaugur Victor Pálsson og hans menn í Horsens töpuðu fyrir Esbjerg, 2-1, í dönsku B-deildinni.

Breki Baldursson var á bekknum hjá Esbjerg en kom ekki við sögu.

Esbjerg er í 4. sæti með 32 stig en Horsens í sætinu fyrir neðan með 29 stig.

Óttar Magnús Karlsson kom inn af bekknum í 3-0 sigri Renate á Dolomiti Bellunesi í A-riðli C-deildarinnar á Ítalíu. Renate er í 5. sæti með 48 stig.

Sveinn Aron Guðjohnsen byrjaði hjá Cavese sem vann Audace Cerignola 2-0 í C-riðli C-deildarinnar. Cavese er í 14. sæti með 31 stig.

Júlíus Magnússon byrjaði inn á hjá Elfsborg sem vann Sundsvall, 1-0, í annarri umferð í riðlakeppni sænska bikarsins. Elfsborg er með fullt hús stiga eftir tvo leiki.

Oskar Sverrisson lék allan leikinn hjá Trelleborg sem tapaði fyrir Gautaborg, 4-0, í bikarnum. Kolbeinn Þórðarson var ekki með Gautaborg, en hann var með íslenska landsliðinu í verkefni í Mexíkó á dögunum.Gautaborg er með 4 stig en Trelleborg án stiga

Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður í 2-3 tapi NEC Nijmegen gegn Fortuna Sittard í hollensku úrvalsdeildinni.

Willum lék í rúmar fimmtán mínútur en Nijmegen er í 4. sæti með 43 stig eftir 25 leiki.
Athugasemdir
banner