Ekki er víst að Íran muni spila HM-leiki sína í Bandaríkjunum en þetta segir Mehdi Taj, forseti fótboltasambands Írans, í samtali við ríkissjónvarpið í Tehran í Íran. Deildarkeppni hefur þá verið stöðvuð í landinu.
Bandaríkin og Ísrael hófu loftárásir á Íran í gærmorgun þar sem sprengjum var varpað á Tehran, höfuðborg Írans.
EInnig hefur komið fram að Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, sé látinn en þetta staðfesti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í gær.
Íran hóf gagnárásir gagnvart Ísrael ásamt því að senda sprengjur í átt að herstöðvum Bandaríkjanna í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Barein, Katar og Kúveit.
Fótboltamálin eru óráðin. Það sem Taj staðfesti er að deildarkeppni hefur verið stöðvuð í Íran.
Íranska landsliðið komst á HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar, en allir þrír leikir liðsins í riðlakeppni eru spilaðir í Bandaríkjunum.
Íran spilar við Nýja-Sjáland og Belgíu í Los Angeles í Kaliforníu og síðan Egyptum í Seattle í Washington-ríki. Það er algerlega óljóst hvort íranska landsliðið muni spila í Bandaríkjunum, skrá sig úr keppni eða óska eftir því að spila í öðru landi.
„Eftir það sem gerðist í gær varðandi árás Bandaríkjahers þá er ólíklegt að við getum hlakkað til að spila á HM, en þetta er eitthvað sem yfirmenn íþróttamála verða að taka ákvörðun um,“ sagði Taj.
Athugasemdir

