Englandsmeistarar Liverpool skoruðu þrjú mörk eftir hornspyrnur í fyrri hálfleiknum í 5-2 sigrinum á West Ham á Anfield í gær en þetta er aðeins í annað sinn í sögunni sem þetta gerist.
Hugo Ekitike skoraði fyrsta markið snemma leiks eftir smá skallatennis eftir hornspyrnu. Ryan Gravenberch kom boltanum inn á teiginn á Ekitike sem skoraði með flottu skoti.
Virgil van Dijk gerði næsta mark með skalla eftir hornspyrnu Dominik Szoboszlai og þá skoraði Alexis Mac Allister frábært mark á lofti eftir enn eitt hornið.
Þetta var í annað sinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þar sem liði tekst að skora eftir þrjár hornspyrnur í fyrri hálfleik, en Manchester United átti metið á undan þegar það gerði slíkt hið sama í leik gegn Leicester í september árið 2016.
Föstu leikatriðin hafa verið mikil til umræðu á þessari leiktíð og þar á meðal Arsenal sem hefur verið gagnrýnt fyrir að nota hinar ýmsu brellur í hornspyrnum sínum.
Það verður fróðlegt að sjá í lok tímabils hvaða lið mun hafa skorað flestu mörkin eftir föst leikatriði.
Samkvæmt lista GiveMeSport hefur Arsenal skorað 20 mörk úr föstum leikatriðum í deildinni á tímabilinu, en Liverpool 13 mörk.
3 - Liverpool are the second team in Premier League history to score three goals from corners in the first half of a match, after Man Utd against Leicester in September 2016. FC. pic.twitter.com/m0M5FZ19ko
— OptaJoe (@OptaJoe) February 28, 2026
Athugasemdir



