Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 28. febrúar 2026 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Hákon Rafn í markinu í ótrúlegum leik - Liverpool í stuði
Hákon Rafn Valdimarsson.
Hákon Rafn Valdimarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Burnley kom til baka.
Burnley kom til baka.
Mynd: EPA
Gakpo var á meðal markaskorara hjá Liverpool.
Gakpo var á meðal markaskorara hjá Liverpool.
Mynd: EPA
Thierno Barry gerði sigurmark Everton með rassinum.
Thierno Barry gerði sigurmark Everton með rassinum.
Mynd: EPA
Hákon Rafn Valdimarsson varði mark Brentford gegn Burnley í ótrúlegum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Brentford byrjaði leikinn miklu betur og virtist ætla að valta yfir Burnley. Mikkel Damsgaard, Igor Thiago og Kevin Schade skoruðu og var staðan orðin 0-3 eftir rúmlega hálftíma leik.

En rétt fyrir lok fyrri hálfleiks minnkaði Burnley muninn þegar Michael Kayode gerði sjálfsmark. Það var upphafið að endurkomunni því Burnley jafnaði metin í síðari hálfleik. Aftur fór boltinn af Kayode í öðru markinu og svo skoraði Zian Flemming jöfnunarmarkið með sterkum skalla.

Flemming skoraði fjórða mark Burnley en það var dæmt af vegna rangstöðu. Burnley hefur mikið verið að koma til baka og greinilega sterkur karakter í þeirra liði, en það dugði þeim ekki í dag því Brentford gerði sigurmarkið í uppbótartíma - Damsgaard þar að verki.

Gamla kempan Ashley Barnes jafnaði fyrir Burnley með flautumarki en það var dæmt af þar sem hann fékk boltann í höndina áður en hann skoraði. Dómararnir skoðuðu þetta lengi, í rúmar fimm mínútur, en það var dæmt af. Ótrúleg dramatík en sigur Brentford staðreynd og Hákon því í sigurliði.

Hákon Rafn spilaði sinn þriðja úrvalsdeildarleik fyrir Brentford í dag en liðið er í sjöunda sæti með 43 stig.

Liverpool gerði fimm mörk
Það fóru tveir leikir fram á sama tíma og það voru líka mjög skemmtilegir leikir. Liverpool lék á als oddi gegn West Ham og kallaði FH eftir því á samfélagsmiðlum að West Ham myndi ekki mæta til leiks í seinni hálfleik þar sem staðan var 3-0 að fyrri hálfleiknum loknum.

Hugo Ekitike, Virgil van Dijk og Alexis Mac Allister skoruðu mörk Liverpool í fyrri hálfleik en í byrjun seinni hálfleiks minnkaði Tomas Soucek. Hollendingarnir Cody Gakpo og Jeremie Frimpong bættu við mörkum fyrir Liverpool í seinni hálfleiknum en þar á milli gerði Taty Castellanos mark fyrir West Ham.

Lokatölur 5-2 og fer Liverpool upp að hlið Man Utd í fjórða sæti deildarinnar. West Ham er enn á fallsvæðinu, tveimur stigum frá öruggu sæti.

Þá skoraði Thierno Barry sigurmark Everton með rassinum í dramatískum sigri gegn Newcastle á útivelli. Everton komst þrisvar yfir í leiknum og náði að lokum að klára mjög sterkan sigur á erfiðum útivelli.

Everton er komið upp í áttunda sæti á meðan Newcastle situr í tólfta sæti sem hljóta að vera mikil vonbrigði þar á bæ.

Liverpool 5 - 2 West Ham
1-0 Hugo Ekitike ('5 )
2-0 Virgil van Dijk ('24 )
3-0 Alexis Mac Allister ('43 )
3-1 Tomas Soucek ('49 )
4-1 Cody Gakpo ('70 )
4-2 Taty Castellanos ('75 )
5-2 Jeremie Frimpong ('82 )

Burnley 3 - 4 Brentford
0-1 Mikkel Damsgaard ('9 )
0-2 Igor Thiago ('25 )
0-3 Kevin Schade ('34 )
1-3 Michael Kayode ('45 , sjálfsmark)
2-3 Jaidon Anthony ('47 )
3-3 Zian Flemming ('60 )
3-4 Mikkel Damsgaard ('90 )

Newcastle 2 - 3 Everton
0-1 Jarrad Branthwaite ('19 )
1-1 Jacob Ramsey ('32 )
1-2 Beto ('34 )
2-2 Jacob Murphy ('82 )
2-3 Thierno Barry ('83 )
Athugasemdir
banner
banner