Jose Mourinho, stjóri Benfica, segir að Gianluca Prestianni, leikmaður liðsins, sé ekki velkominn í hópinn framar ef hann verður fundinn sekur um rasisma í garð Vinicius Junior.
Mourinho hefur ekki viljað tjá sig um málið þangað til núna. Vinicius ásakaði Prestianni um rasisma eftir að sá fyrr nefndi skoraði eina mark leiksins í fyrri viðureign liðanna í Meistaradeildarumspilinu.
Prestianni var dæmdur í tímabundið bann á meðan UEFA rannsakar málið en hann var ekki með í 2-1 tapi Benfica í seinni leiknum.
„Ef leikmaðurinn virti ekki okkar meginreglur er ferlinum hans lokið hjá stjóra sem heitir Mourinho og félagi eins og Benfica," sagði Mourinho.
Athugasemdir


