Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   sun 01. mars 2026 19:29
Brynjar Ingi Erluson
Æfingaleikur: KA vann norskt B-deildarlið á Marbella
Jakob Snær skoraði fyrir KA
Jakob Snær skoraði fyrir KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Æfingaferð KA á Marbella á Spáni er komin á fullt og spilaði liðið æfingaleik í dag þar sem það vann norska B-deildarliðið Strommen, 2-1.

Strommen vann sér sæti í norsku B-deildina á síðustu leiktíð með að hafna í efsta sæti B-riðils C-deildar.

KA-menn hafa endurheimt þá Hallgrím Mar Steingrímsson og Hans Viktor Guðmundsson sem voru með íslenska landsliðinu í Mexíkó.

Þeir unnu flottan 2-1 sigur á Strommen en Breki Hólm Baldursson og Jakob Snær Árnason skoruðu mörk KA í leiknum. Jakob Snær er að snúa til baka eftir að hafa slitið hásin í fyrra.





Slapp
banner
banner
banner