Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
banner
   lau 28. febrúar 2026 19:46
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Bayern með ellefu stiga forystu eftir sigur á Dortmund - Kane með tvö
Harry Kane er að eiga svakalegt tímabil.
Harry Kane er að eiga svakalegt tímabil.
Mynd: EPA
Borussia D. 2 - 3 Bayern
1-0 Nico Schlotterbeck ('26 )
1-1 Harry Kane ('54 )
1-2 Harry Kane ('70 , víti)
2-2 Daniel Svensson ('83 )
2-3 Joshua Kimmich ('87 )

Þýskalandsmeistarar Bayern München eru komnir með níu fingur á titilinn eftir að hafa unnið erkifjendur sína í Borussia Dortmund, 3-2, í Dortmund í dag.

Átta stiga munur var á liðunum fyrir leikinn en Dortmund vissi það að tap myndi þýða að titilbaráttunni væri svo gott sem lokið.

Varnarmaðurinn Nico Schlotterbeck stangaði heimamönnum í forystu á 26. mínútu eftir aukaspyrnu Daniel Svensson og staðan í hálfleik 1-0 heimamönnum í vil.

Í þeim síðari komu Bæjarar sterkir til leiks. Harry Kane jafnaði á 54. mínútu eftir stórkostlega sókn. Boltanum var vippað inn á teiginn á Serge Gnabry sem skallaði hann niður á Kane sem setti boltann í vinstra hornið.

Hann kom Bayern yfir með marki úr vítaspyrnu á 70. mínútu leiksins. Svakalegt skrið á Kane sem hefur nú skorað tvö mörk eða meira í síðustu fjórum leikjum, en það hefur ekki gerst í deildinni síðan 2001.

Daniel Svensson jafnaði metin fyrir Dortmund þrettán mínútum síðar en Bayern svaraði fjórum mínútum síðar með marki Joshua Kimmich.

Ótrúlega mikilvægt mark Kimmich sem reyndist sigurmarkið í leiknum.

Bayern er á toppnum með 63 stig, ellefu stigum meira en Dortmund sem er í öðru þegar tíu umferðir eru eftir. Erfitt að sjá Bayern klúðra svona forystu, en aldrei segja aldrei. Dortmund þyrfti að vinna rest og treysta á að Bayern tapi stigum í fjórum eða fimm leikjum.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 29 24 4 1 105 27 +78 76
2 Dortmund 29 19 7 3 60 29 +31 64
3 Stuttgart 29 17 5 7 60 38 +22 56
4 RB Leipzig 29 17 5 7 56 36 +20 56
5 Leverkusen 29 15 7 7 59 39 +20 52
6 Hoffenheim 29 15 6 8 57 43 +14 51
7 Frankfurt 29 11 9 9 54 54 0 42
8 Freiburg 29 11 7 11 42 47 -5 40
9 Mainz 29 8 9 12 35 44 -9 33
10 Augsburg 29 9 6 14 36 53 -17 33
11 Union Berlin 29 8 8 13 33 50 -17 32
12 Hamburger 29 7 10 12 32 45 -13 31
13 Köln 29 7 9 13 43 50 -7 30
14 Gladbach 29 7 9 13 35 49 -14 30
15 Werder 29 7 7 15 32 52 -20 28
16 St. Pauli 29 6 7 16 25 50 -25 25
17 Wolfsburg 29 5 6 18 39 65 -26 21
18 Heidenheim 29 4 7 18 32 64 -32 19
Slapp
banner