Man Utd fær Crystal Palace í heimsókn í dag en liðið kemst upp í 3. sæti deildarinnar með sigri eftir að Aston Villa tapaði óvænt gegn Wolves í gær.
„Hver ??einasti leikur héðan í frá verður mikilvægur. Frá einni helgi til annarrar verða upp- og niðursveiflur og það er eitthvað sem maður verður að takast á við," sagði Michael Carrick.
„Leikurinn í dag er erfiður, þeir eru erfitt lið, vel skipulagðir og erfitt að spila á móti þeim. Við verðum að vera nálægt okkar besta til að fá eitthvað út úr þessum leik."
Benjamin Sesko fær tækifæri í byrjunarliðinu eftir að hafa verið frábær sem varamaður í undanförnum leikjum. Hann kemur inn í liðið fyrir Amad Diallo.
„Við höfum verið að spila vel sem lið, Sesko hefur liðið vel undanfarnar vikur og er að byggja upp sjálfstraust. Ég hlakka til að sjá hann í dag. Amad er frábær kostur til að klára leikinn. Hann getur tekið að sér mörg mismunandi hlutverek," sagði Carrick.
Athugasemdir

