Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   sun 01. mars 2026 20:28
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Einn sá eftirsóttasti gerði sigurmark Leipzig - Stórsigur hjá Stuttgart
Yan Diomande skoraði sigurmark Leipzig
Yan Diomande skoraði sigurmark Leipzig
Mynd: EPA
Deniz Undav heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Stuttgart
Deniz Undav heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Stuttgart
Mynd: EPA
Fílabeinsstrendingurinn Yan Diomande, sem er eftirsóttur af stærstu félögum heims, gerði sigurmark RB Leipzig í 2-1 sigrinum á Hamburger SV í þýsku deildinni í dag.

Eintracht Frankfurt lagði Freiburg að velli, 2-0. Fares Chaibi og Jean-Matteo Bahoya skoruðu mörkin á sautján mínútna kafla í síðari hálfleiknum.

Stuttgart sem komst áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar á dögunum fylgdu því vel á eftir með því að pakka Wolfsburg saman, 4-0. Jamie Leweling skoraði tvö mörk og þá skoraði Deniz Undav og NIkolas Nartey einnig fyrir liðið.

Diomande var hetja Leipzig í 2-1 sigri liðsins á Hamburger SV.

Fabio Vieira kom Hamburger yfir á 22. mínútu en Romulo jafnaði metin tæpum stundarfjórðungi síðar.

Diomande skoraði sigurmarkið snemma í síðari hálfleiknum og gátu Leipzig menn gulltryggt sigurinn nokkrum mínútum síðar er liðið fékk vítaspyrnu en Daniel Heuer Fernandes varði frá Romulo og hélt sínum mönnum inn í leiknum.

Títtnefndur Diomande er meðal annars á ratsjá Liverpool og Manchester United á Englandi, en Leipzig hefur sett 80 milljóna punda verðmiða á þennan 19 ára gamla strák.

Hamburger tókst þó ekki að koma til baka og varð 2-1 tap niðurstaðan. Leipzig er í 5. sæti með 44 stig en Hamburger í 11. sæti með 26 stig.

Eintracht Frankfurt 2 - 0 Freiburg
1-0 Fares Chaibi ('64 )
2-0 Jean-Matteo Bahoya ('81 )

Stuttgart 4 - 0 Wolfsburg
1-0 Deniz Undav ('21 )
2-0 Jamie Leweling ('30 )
3-0 Jamie Leweling ('42 )
4-0 Nikolas Nartey ('90 )

Hamburger 1 - 2 RB Leipzig
1-0 Fabio Vieira ('22 )
1-1 Romulo ('36 )
1-2 Yan Diomande ('50 )
1-2 Romulo ('62 , Misnotað víti)
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 29 24 4 1 105 27 +78 76
2 Dortmund 29 19 7 3 60 29 +31 64
3 Stuttgart 29 17 5 7 60 38 +22 56
4 RB Leipzig 29 17 5 7 56 36 +20 56
5 Leverkusen 29 15 7 7 59 39 +20 52
6 Hoffenheim 29 15 6 8 57 43 +14 51
7 Frankfurt 29 11 9 9 54 54 0 42
8 Freiburg 29 11 7 11 42 47 -5 40
9 Mainz 29 8 9 12 35 44 -9 33
10 Augsburg 29 9 6 14 36 53 -17 33
11 Union Berlin 29 8 8 13 33 50 -17 32
12 Hamburger 29 7 10 12 32 45 -13 31
13 Köln 29 7 9 13 43 50 -7 30
14 Gladbach 29 7 9 13 35 49 -14 30
15 Werder 29 7 7 15 32 52 -20 28
16 St. Pauli 29 6 7 16 25 50 -25 25
17 Wolfsburg 29 5 6 18 39 65 -26 21
18 Heidenheim 29 4 7 18 32 64 -32 19
Slapp
banner