Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   lau 28. febrúar 2026 17:39
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Hljóp úr vörninni og skoraði jöfnunarmarkið
Jarell Quansah tók langt hlaup fram völlinn og skoraði
Jarell Quansah tók langt hlaup fram völlinn og skoraði
Mynd: EPA
Enski miðvörðurinn Jarell Quansah bjargaði stigi fyrir Bayer Leverkusen með dramatískum hætti er liðið gerði 1-1 jafntefli við Mainz á heimavelli í þýsku deildinni í dag.

Sheraldo Becker skoraði fyrir Mainz á 67. mínútu en tveimur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma hljóp Quansah fram í skyndisón.

Christian Kofane kom boltanum inn á teiginn á Quansah sem rennitæklaði boltann í netið og bjargaði þannig stigi.

Quansah, sem kom frá Liverpool á síðasta ári, hefur skorað fimm mörk í öllum keppnum með Leverkusen á tímabilinu sem er í 6. sæti deildarinnar með 40 stig.

Werder Bremen lagði Heidenheim að velli, 2-0. Jovan Milosevic og sjálfsmark frá Hennes Behrens skildu liðin að.

St. Pauli vann óvæntan 1-0 útisigur á spútnikliði Hoffenheim. Mathias Prereira Lage gerði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks og þá vann Borussia Mönchengladbach lið Union Berlín með sömu markatölu þökk sé vítaspyrnumarki frá Kevin Diks undir lok leiks.

Úrslit og markaskorarar:

Werder 2 - 0 Heidenheim
1-0 Jovan Milosevic ('57 )
2-0 Hennes Behrens ('90 , sjálfsmark)

Hoffenheim 0 - 1 St. Pauli
0-1 Mathias Pereira Lage ('45 )

Bayer 1 - 1 Mainz
0-1 Sheraldo Becker ('67 )
1-1 Jarell Quansah ('88 )

Borussia M. 1 - 0 Union Berlin
1-0 Kevin Diks ('90 , víti)
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 29 24 4 1 105 27 +78 76
2 Dortmund 29 19 7 3 60 29 +31 64
3 Stuttgart 29 17 5 7 60 38 +22 56
4 RB Leipzig 29 17 5 7 56 36 +20 56
5 Leverkusen 29 15 7 7 59 39 +20 52
6 Hoffenheim 29 15 6 8 57 43 +14 51
7 Frankfurt 29 11 9 9 54 54 0 42
8 Freiburg 29 11 7 11 42 47 -5 40
9 Mainz 29 8 9 12 35 44 -9 33
10 Augsburg 29 9 6 14 36 53 -17 33
11 Union Berlin 29 8 8 13 33 50 -17 32
12 Hamburger 29 7 10 12 32 45 -13 31
13 Köln 29 7 9 13 43 50 -7 30
14 Gladbach 29 7 9 13 35 49 -14 30
15 Werder 29 7 7 15 32 52 -20 28
16 St. Pauli 29 6 7 16 25 50 -25 25
17 Wolfsburg 29 5 6 18 39 65 -26 21
18 Heidenheim 29 4 7 18 32 64 -32 19
Slapp
banner