Njarðvík gerði í vikunni veglegt tilboð í Bjart Bjarma Barkarson, leikmann Aftureldingar, samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Tilboðinu var hafnað.
Njarðvík er í leit að miðjumanni eftir að fyrirliði þeirra, Tómas Bjarki Jónsson, sleit krossband á dögunum.
Njarðvík er í leit að miðjumanni eftir að fyrirliði þeirra, Tómas Bjarki Jónsson, sleit krossband á dögunum.
Tómas Bjarki varð fyrir því óláni að slíta krossband í leik Njarðvíkur gegn KA í Lengjubikarnum um síðustu helgi. Hann mun missa af öllu tímabilinu sem framundan er.
Njarðvík er að skoða möguleika á leikmannamarkaðnum eftir meiðslin og gerði félagið tilboð í Bjart Bjarma sem var hafnað.
Bjartur Bjarmi er öflugur leikmaður sem hefur spilað frábærlega með Aftureldingu síðustu ár.
Hann er uppalinn í Víking Ólafsvík en kom til Aftureldingu 2023 og spilaði 26 leiki með liðinu í Bestu deildinni síðasta sumar.
Athugasemdir


