Magni, Selfoss og Víkingur Ó. unnu öll sannfærandi sigra í B-deild Lengjubikarsins í dag.
Magnamenn unnu Tindastól, 4-1, í Boganum. Tómas Örn Arnarson skoraði tvö fyrir Magna.
Á lokamínútum leiksins sá David Bercado sitt annað gula spjald og þar með rautt. Í kjölfarið fékk Ísak Sigurjónsson einnig rauða spjaldið hjá Stólunum.
Magni er í öðru sæti D-riðils með 6 stig eftir þrjá leiki en Tindastóll án stiga í neðsta sætinu.
Í B-riðli unnu Selfyssingar 2-0 sigur á KFG. Elvar Orri Sigurbjörnsson skoraði bæði mörkin og sá til þess að Selfoss sé áfram með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.
Víkingur Ólafsvík fór illa með Sindra í sama riðli en lokatölur þar urðu 5-1 Ólsurum í vil. Asmer Begic skoraði tvö fyrir Ólsara sem eru í öðru sæti með 6 stig, þremur stigum á eftir Selfossi, en KFG er í 4. sæti með 3 stig og Sindri án stiga í næst neðsta sæti.
Úrslit og markaskorarar:
Magni 4 - 1 Tindastóll
1-0 Daníel Smári Sveinsson ('49, sjálfsmark )
2-0 Tómas Örn Arnarson ('63 )
3-0 Tómas Örn Arnarson ('82 )
4-0 Sigurður Hrafn Ingólfsson ('85 )
4-1 Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson ('86 )
Rautt spjald: David Bercedo ('90, Tindastóll), Ísak Sigurjónsson ('90, Tindastóll)
KFG 0 - 2 Selfoss
0-1 Elvar Orri SIgurbjörnsson ('26 )
0-2 Elvar Orri Sigurbjörnsson ('53 )
Sindri 1 - 5 Víkingur Ó.
1-0 Emir Mesetovic ('20 )
1-1 Kolbeinn Tumi Sveinsson ('29 )
1-2 Ellert Gauti Heiðarsson ('33 )
1-3 Asmer Begic ('42 )
1-4 Asmer Begic ('51 )
1-5 Haukur Smári Ragnarsson ('89 )
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 2
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur Ó. | 5 | 4 | 1 | 0 | 17 - 5 | +12 | 12 |
| 2. Selfoss | 5 | 4 | 1 | 0 | 13 - 4 | +9 | 12 |
| 3. Reynir S. | 4 | 3 | 1 | 0 | 5 - 3 | +2 | 9 |
| 4. KFG | 4 | 2 | 2 | 0 | 13 - 9 | +4 | 6 |
| 5. Sindri | 4 | 0 | 4 | 0 | 3 - 15 | -12 | 0 |
| 6. Árbær | 4 | 0 | 4 | 0 | 4 - 19 | -15 | 0 |
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 4
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Dalvík/Reynir | 4 | 4 | 0 | 0 | 10 - 3 | +7 | 12 |
| 2. Magni | 3 | 2 | 1 | 0 | 5 - 2 | +3 | 6 |
| 3. KFA | 3 | 1 | 2 | 0 | 7 - 6 | +1 | 3 |
| 4. Höttur | 3 | 1 | 2 | 0 | 5 - 9 | -4 | 3 |
| 5. Tindastóll | 3 | 0 | 3 | 0 | 2 - 9 | -7 | 0 |
Athugasemdir


