Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, skoraði 28. deildarmark sitt fyrir Liverpool í 5-2 sigrinum á West Ham í gær en það gerir hann að öðrum markahæsta miðverði í sögu deildarinnar.
Van Dijk skoraði annað mark Liverpool með skalla eftir hornspyrnu Dominik Szoboszlai.
Þetta var þriðja deildarmark hans á tímabilinu og hafa öll þrjú mörkin komið á rúmum mánuði.
Samtals hefur hann gert 28 mörk (vítaspyrnur ekki teknar með) síðan hann kom í deildina er hann samdi við Southampton.
Aðeins einn miðvörður skákar honum en það er Englendingurinn John Terry sem gerði 41 deildarmark.
Það má hafa í huga að Terry spilaði nítján tímabil með Chelsea í úrvalsdeildinni en Van Dijk hefur aðeins leikið ellefu tímabil.
Ólíklegt er að hann muni taka þetta met af Terry, en samningur Van Dijk rennur út á næsta ári. Hann þyrfti alla vega að vera ansi duglegur í teig andstæðinganna til þess að ná þessum merka áfanga.
28 - Only John Terry (41) has more Premier League goals among central defenders, excluding penalties, in the competition's history than Virgil van Dijk (28). Heated. pic.twitter.com/yhXFEss0mx
— OptaJoe (@OptaJoe) February 28, 2026
Athugasemdir


