Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   sun 01. mars 2026 17:31
Brynjar Ingi Erluson
U16: Skoraði þrennu á sjö mínútum í ótrúlegri endurkomu
U16 ára landsliðið gerði 3-3 jafntefli við Bosníu
U16 ára landsliðið gerði 3-3 jafntefli við Bosníu
Mynd: KSÍ
Íslenska drengjalandsliðið skipað leikmönnum 16 ára og yngri gerði ótrúlegt 3-3 jafntefli við Bosníu og Hersegóvínu í þróunarmóti UEFA í Færeyjum í dag.

Ísland lenti þremur mörkum undir í leiknum en Magnús Daði Ottesen fór hamförum í síðari hálfleiknum og skoraði þrennu á aðeins sjö mínútum.

Magnús er á mála hjá Fylki og lék sinn fyrsta deildarleik með liðinu í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð. Hann er sonur Sölva Geirs Ottesen, þjálfara Íslandsmeistaranna í Víkingi.

Í þessu móti er farið í vítaspyrnukeppni ef leikir enda með jafntefli og Bosnía vann vítakeppnina 4-2. Bosnía fékk því tvö stig og Ísland eitt stig.

Ísland mætir heimamönnum í Færeyjum í síðasta leik mótsins á miðvikudag klukkan 15:00.
Slapp
banner
banner