Landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson byrjar í markinu hjá Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Brentford sækir Burnley heim og er Hákon Rafn á milli stanganna. Þetta er þriðji leikur hans í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur verið varamarkvörður hjá félaginu frá því hann kom frá Elfsborg í janúar 2024.

Caoimhín Kelleher er búinn að vera aðalmarkvörður Brentford á tímabilinu en hann er fjarri góðu gamni í dag. Hann er ekki meiddur.
„Kærasta Caoimhín var að fæða barn. Við erum ánægð fyrir þeirra hönd og óskum þeim þess besta," sagði Keith Andrews, stjóri Brentford, fyrir leik dagsins.
„Hann getur ekki spilað í dag."
Hákon fær því tækifæri til að sýna sig og sanna. Leikurinn er við það að hefjast.
Athugasemdir