Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 10:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kölluðu Guardiola fávita
Mynd: EPA
Það var mikill pirringur í Leedsurum eftir 1-0 tap liðsins gegn Man City í gær. Antoine Semenyo skoraði eina mark leiksins en hann hefur komið að átta mörkum síðan hann gekk til liðs við félagið frá Bournemouth í janúar.

Daniel Farke, stjóri Leeds, var ekki sáttur í leikslok og fékk rautt spjald fyrir mótmæli en hann taldi Leeds hafa átt að fá víti þegar boltinn virtist hafa í höndina á Matheus Nunes. Þá var hann einnig óánægður með þegar Rayan Cherki steig á Ilian Gruev.

Þá greindi Pep Guardiola frá því að stuðningsmenn Leeds hafi kallað hann fávita.

„Þetta gerist reglulega, fáviti, fáviti, svona er þetta," sagði Guardiola og hló.
Athugasemdir
banner
banner