Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   lau 28. febrúar 2026 22:23
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Lukaku hetjan - Mikael tapaði á San Síró
Romelu Lukaku var hetja Napoli
Romelu Lukaku var hetja Napoli
Mynd: EPA
Topplið Inter náði að hrista af sér vonbrigði vikunnar í Meistaradeildinni með því að vinna Genoa 2-0 á San Síró í Mílanó í kvöld.

Bakvörðurinn Federico Dimarco skoraði stórbrotið mark með viðstöðulausu skoti á loft eftir laglega sendingu yfir vörnina og þá gulltryggði Hakan Calhanoglu sigurinn með marki úr vítaspyrnu tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Inter tókst að auka forystu sína á toppnum í þrettán stig og færist nær Ítalíumeistaratitlinum.

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn í liði Genoa.

Ítalíumeistarar Napoli unnu dramatískan 2-1 sigur á Hellas Verona.

Rasmus Höjlund skoraði í upphafi leiks áður en JEan-Daniel Akpa Akpro jafnaði metin tæpum hálftíma fyrir leikslok.

Belgíski reynsluboltinn Romelu Lukaku var hetja Napoli með marki undir lok leiks og sá til þess að halda Napoli áfram í baráttu um Meistaradeildarsæti.

Lærisveinar Cesc Fabregas í Como unnu Þóri Jóhann Helgason og félaga í Lecce, 3-1. Gestirnir í Lecce komust óvænt yfir á 13. mínútu, en Como náði að skora öll þrjú mörk sín áður en hálfleikurinn var úti.

Anastasios Douvikas, Jesus Rodriguez og Marc-Oliver Kempf skoruðu mörkin á tæpum hálftíma. Þórir Jóhann var á bekknum hjá Lecce en kom ekki við sögu.

Como er í 5. sæti með 48 stig, tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti.

Úrslit og markaskorarar:

Verona 1 - 2 Napoli
0-1 Rasmus Hojlund ('2 )
1-1 Jean-Daniel Akpa Akpro ('65 )
1-2 Romelu Lukaku ('90 )

Como 3 - 1 Lecce
0-1 Lassana Coulibaly ('13 )
1-1 Anastasios Douvikas ('18 )
2-1 Jesus Rodriguez ('35 )
3-1 Marc-Oliver Kempf ('44 )

Inter 2 - 0 Genoa
1-0 Federico Dimarco ('31 )
2-0 Hakan Calhanoglu ('70 , víti)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 32 24 3 5 75 29 +46 75
2 Napoli 32 20 6 6 48 31 +17 66
3 Milan 32 18 9 5 47 27 +20 63
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 32 16 10 6 56 26 +30 58
6 Roma 32 18 3 11 45 28 +17 57
7 Atalanta 32 14 11 7 44 28 +16 53
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Lazio 32 11 11 10 32 30 +2 44
10 Udinese 32 12 7 13 38 42 -4 43
11 Sassuolo 32 12 6 14 39 43 -4 42
12 Torino 32 11 6 15 37 54 -17 39
13 Genoa 32 9 9 14 38 45 -7 36
14 Parma 32 8 12 12 23 40 -17 36
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 32 8 9 15 33 44 -11 33
17 Cremonese 32 6 9 17 26 47 -21 27
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Verona 32 3 9 20 23 55 -32 18
20 Pisa 32 2 12 18 23 58 -35 18
Slapp
banner
banner
banner