Marcus Rashford hefur samþykkt að ganga alfarið til liðs við Barcelona - Darwin Nunez eftirsóttur - Rodri er orðaður við Real Madrid
   sun 01. mars 2026 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Alfons og Stefán Ingi fögnuðu sigri - Mikael klikkaði á víti en bætti upp fyrir það
Alfons er kominn með fast sæti í liði Eagles
Alfons er kominn með fast sæti í liði Eagles
Mynd: Go Ahead Eagles
Mikael skoraði í stórsigri Djurgården
Mikael skoraði í stórsigri Djurgården
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Íslendingalið Go Ahead Eagles vann annan leikinn í röð í hollensku úrvalsdeildinni er liðið hafði betur gegn Excelsior, 1-0, í dag.

Blikarnir Alfons Sampsted og Stefán Ingi SIgurðarson komu til félagsins í vetrarglugganum.

Alfons kom frá Birmingham City og er kominn með fast sæti í byrjunarliði Eagles, en Stefán gekk í raðir félagsins frá Sandefjord í Noregi og verið að sækja dýrmætar mínútur af bekknum.

Alfons var á sínum stað í byrjunarliðinu og þá kom Stefán Ingi inn á þegar stundarfjórðungur var til leiksloka.

Eagles eru í 12. sæti með 29 stig þegar 25 umferðir hafa verið leiknar.

Logi Tómasson byrjaði hjá Samsunspor sem gerði markalaust jafntefli við Gaziantep í tyrknesku úrvalsdeildinni.

Landsliðsmaðurinn fór af velli þegar um það bil tuttugu mínútur voru til leiksloka.

Samsunpor er í 7. sæti með 32 stig, fjórtán stigum frá Evrópusæti.

Mikael Neville Anderson klúðraði vítaspyrnu en bætti upp fyrir það með því að skora nokkrum mínútum síðar í 8-0 stórsigri Djurgården á Skövde í sænska bikarnum.

Djurgården er í öðru sæti E-riðils með 3 stig eftir tvo leiki.
Athugasemdir
banner