Oli McBurnie, framherji Hull í Championship deildinni, missti sig aðeins í hálfleik í 1-0 sigri liðsins gegn Portsmouth í gær.
Staðan var markalaus í hálfleik en Matt Crooks skoraði sigurmarkið þegar rúmlega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma.
Staðan var markalaus í hálfleik en Matt Crooks skoraði sigurmarkið þegar rúmlega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma.
Það vakti athygli að McBurnie ældi á grasið þegar hann gekk inn á völlinn í seinni hálfleik. Hann sló á létta strengi á samfélagsmiðlum eftir leikinn.
„Þurfti kannski að minnka koffínneysluna í hálfleik," skrifaði McBurnie.
????????????????#hcafc https://t.co/zQMUPNjihO pic.twitter.com/3Gzp6YnuJv
— Championship Terrace Talk (@ChampionshpTalk) February 28, 2026
Athugasemdir



