Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   lau 28. febrúar 2026 16:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óheppnin eltir Orra áfram
Orri Steinn Óskarsson.
Orri Steinn Óskarsson.
Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson er kominn aftur á meiðslalistann hjá Real Sociedad og er ekki með gegn Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni á eftir.

Orri hefur verið gríðarlega óheppinn með meiðsli á þessu tímabili en hefur náð að spila nokkra leiki að undanförnu.

Hann hefur leikið mjög vel í þessum leikjum og náð að skora talsvert. Landsliðsfyrirliðinn kom inn á gegn Real Oviedo um síðustu helgi og skoraði þá tvö mörk.

Real Sociedad sé að glíma við smávægileg meiðsli í kálfa en vonandi er það ekki eitthvað sem heldur honum mikið meira frá vellinum.
Athugasemdir
banner