Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   lau 28. febrúar 2026 19:03
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Ingó Sig með tvennu í sigri á Árbæ
Ingó Sig var heitur gegn Árbæingum
Ingó Sig var heitur gegn Árbæingum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingólfur Sigurðsson skoraði tvennu fyrir Reyni Sandgerði sem vann 3-1 sigur á Árbæ í B-deild Lengjubikarsins í dag.

Ingólfur spilaði með Ólsurum á síðustu leiktíð og var einn af lykilmönnum liðsins, en hann skipti yfir í Reyni fyrir undirbúningstímabilið og var að spila þriðja leik sinn með liðinu.

Hann skoraði tvívegis fyrir Reyni. Fyrra markið gerði hann á 30. mínútu og seinna mark sitt á 82. mínútu þar sem hann náði að innsigla sigurinn.

Reynir er í 3. sæti B-riðis með 6 stig eftir þrjá leiki en Árbær án stiga á botninum.

Augnablik náði í fyrsta sigur sinn í A-riðli með því að leggja Kormák/Hvöt að velli, 3-2.

Kolviður Gísli Helgason skoraði tvö mörk fyrir Augnablik og Róbert Laufdal Arnarsson eitt mark.

Augnablik er með þrjú stig en Kormákur/Hvöt án stiga.

Árbær 1 - 3 Reynir S.
0-1 Ingólfur Sigurðsson ('30 )
0-2 Max William Leitch ('73 )
1-2 Richard Már Guðbrandsson ('82 )
1-3 Ingólfur Sigurðsson ('83 )

Augnablik 3 - 2 Kormákur/Hvöt
1-0 Kolviður Gísli Helgason ('6 )
2-0 Róbert Laufdal Arnarsson ('37 )
2-1 Aron Örn Ólafsson ('49 )
3-1 Kolviður Gísli Helgason ('50 )
3-2 Moussa Brou ('71 )
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 1
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fjölnir 5 5 0 0 26 - 7 +19 15
2.    Kári 5 3 2 0 13 - 11 +2 9
3.    KV 4 2 1 1 17 - 13 +4 7
4.    KÁ 5 1 2 2 11 - 11 0 5
5.    Augnablik 5 1 3 1 6 - 14 -8 4
6.    Kormákur/Hvöt 4 0 4 0 5 - 22 -17 0
Lengjubikar karla - B-deild, riðill 2
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur Ó. 5 4 1 0 17 - 5 +12 12
2.    Selfoss 5 4 1 0 13 - 4 +9 12
3.    KFG 5 3 2 0 16 - 11 +5 9
4.    Reynir S. 5 3 2 0 7 - 6 +1 9
5.    Árbær 5 1 4 0 6 - 20 -14 3
6.    Sindri 5 0 5 0 4 - 17 -13 0
Slapp
banner
banner