Liam Rosenior, stjóri Chelsea á Englandi, var svekktur og pirraður eftir 2-1 tapið gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag, en hann segir að liðið þurfi að laga tvo hluti til þess að eiga gott tímabil.
Bæði mörkin sem Chelsea fékk á sig komu eftir hornspyrnu, en það er einn af þessum tveimur hlutum sem hann telur að liðið þurfi að bæta sig í.
„Ég er svekktur og vonsvikinn. Við munum ekki ná markmiðum okkar og afrekum ef við útrýmum ekki þessum vandamálum sem hafa verið að læðast aftan að okkur hvað varðar aga og föst leikatriði.“
„Þetta er eitthvað sem við verðum að eiga við. Það er ákveðið einbeitingaleysi sem við verðum að takast á við. Við unnum í föstu leikatriðunum alla vikuna og því enn erfiðara að kyngja þessu sem stjóri liðsins.“
„Við vissum að þetta væri einn af helstu styrkleikum Arsenal. Þessu verður að linna. Ég er orðinn þreyttur á að koma alltaf og ræða þetta. Við áttum erfiða frammistöðu gegn Burnley, leik sem við áttum að vinna. Leeds voru mjög góðir en við gáfum tvö mörk frá okkur. Í dag heimsækjum við Arsenal og spilum eins og við höfum verið að gera í síðustu leikjum en gefum tvö mörk. Þetta eru mikil vonbrigði.“
Einnig segir hann mikið agaleysi í liðinu en þar á hann við rauða spjaldið sem Pedro Neto sá í síðari hálfleik sem hafði mikil áhrif á leik Chelsea-liðsins. Hann vildi þá ekki tala um forvera sinn, Enzo Maresca, og það sem gerðist áður en hann tók við keflinu.
„Sama sagan. Ég ætla að nefna tvo hluti. Allir sem hafa horft á þennan leik eða síðustu tvo leiki sjá að það eru tveir hlutir sem við þurfum að bæta. Það er aginn og að verjast föstum leikatriðum. Ef við getum gert það þá eigum við enn möguleika á góðu tímabili.“
„Ég ber ómælda virðingu fyrir Enzo Maresca, sem þjálfara og manneskju. Hann reyndi sitt allra besta og ég mun ekki tjá mig um það sem gerðist á undan.“
„Við erum komnir aftur í eitthvað sem mér líkar ekki að sjá,“ sagði Rosenior.
Athugasemdir


