Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   sun 01. mars 2026 21:47
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Mögnuð endurkoma Juventus í Róm - Atalanta tapaði gegn tíu leikmönnum Sassuolo
Federico Gatti var bjargvættur Juventus
Federico Gatti var bjargvættur Juventus
Mynd: EPA
Ismael Kone skoraði í óvæntum sigri Sassuolo
Ismael Kone skoraði í óvæntum sigri Sassuolo
Mynd: EPA
Juventus átti stórkostlega endurkomu er liðið gerði 3-3 jafntefli við Roma í 27. umferð ítölsku deildarinnar í Róm í kvöld.

Juventus hefur verið að upplifa hörmulegar vikur undir stjórn Luciano Spalletti.

Liðið datt úr leik í ítalska bikarnum og Meistaradeildinni og hafði ekki unnið í síðustu þremur deildarleikjum. Sigurinn kom að vísu ekki í kvöld en liðið sýndi frábæran karakter gegn Roma.

Tvisvar komst Roma yfir í leiknum. Vængbakvörðurinn Wesley skoraði á 39. mínútu en Francisco Conceicao jafnaði snemma í þeim síðari.

Miðvörðurinn Evan Ndicka kom Roma aftur yfir á 54. mínútu og þá hélt Donyell Malen áfram í fantaformi er hann tvöfaldaði forystu heimamanna.

Juventus lagði ekki árar í bát heldur kom til baka með tveimur mörkum á síðasta stundarfjórðungi leiksins. Jeremie Boga minnkaði muninn á 78. mínútu áður en Federico Gatti jafnaði metin undir lok leiks.

Sterk endurkoma hjá Juventus sem er í 6. sæti með 47 stig en Roma í 4. sæti með 51 stig.

Torino vann Lazio, 2-0, á heimavelli. Giovanni Simeone og Duvan Zapata skoruðu mörkin.

Atalanta tapaði þá óvænt á móti tíu leikmönnum Sassuolo, 2-1.

Framherjinn Andrea Pinamonti sá rauða spjaldið í liði Sassuolo á 16. mínútu leiksins, en manni færri varð liðið enn betra. Ismael Kone skoraði á 23. mínútu og bætti Kristian Thorstvedt við öðru marki tuttugu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.

Yunus Musah minnkaði muninn undir lok leiks en fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 2-1 Sassuolo í vil.

Úrslit og markaskorarar:

Torino 2 - 0 Lazio
1-0 Giovanni Simeone ('21 )
2-0 Duvan Zapata ('53 )

Roma 3 - 3 Juventus
1-0 Wesley ('39 )
1-1 Francisco Conceicao ('47 )
2-1 Obite Evan Ndicka ('54 )
3-1 Donyell Malen ('65 )
3-2 Jeremie Boga ('78 )
3-3 Federico Gatti ('90 )

Sassuolo 2 - 1 Atalanta
1-0 Ismael Kone ('23 )
2-0 Kristian Thorstvedt ('69 )
2-1 Yunus Musah ('88 )
Rautt spjald: Andrea Pinamonti, Sassuolo ('16)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner
banner