Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   mán 09. mars 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Grímuklæddur áhorfandi tók VAR-skjáinn úr sambandi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Preussen Münster tapaði heimaleik gegn Hertha Berlin í næstefstu deild þýska boltans í gær og var afar áhugavert atvik sem átti sér stað í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Gestirnir frá Berlín vildu fá dæmda vítaspyrnu en Felix Bickel dómari flautaði ekki. Eftir athugun í VAR-herberginu var Bickel sendur í skjáinn en hann gat ekki skoðað atvikið nánar útaf því að það kviknaði ekki á skjánum.

Þegar engin lausn fannst var ákveðið að leyfa VAR-teyminu að ráða og því var vítaspyrna dæmd án þess að Bickel sjálfur sæi atvikið endursýnt.

Miðlar í Þýskalandi fjölluðu um málið og eftir skoðun á öryggismyndavélum tilkynnti heimalið Preussen Münster að grímuklæddur áhorfandi hafði klifrað niður úr stúkunni til að taka VAR-skjáinn úr sambandi.

„Preussen Münster harmar atvikið og mun gera allt í sínu valdi til að bera kennsl á sökudólginn," segir meðal annars í tilkynningu frá félaginu.

„Við höfum gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir að þetta geti endurtekið sig í framtíðinni."

Eftir að skjárinn var tekinn úr sambandi birtist borði meðal áhorfenda heimaliðsins sem á stóð: „Slökkvum á VAR".
Athugasemdir
banner