Það er mikil spenna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld þar sem þrír leikir hefjast klukkan 19:00 og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Ensku úrvalsdeildarliðin Aston Villa og Nottingham Forest eiga útivallarleiki og teflir Unai Emery sterku byrjunarliði er Aston Villa heimsækir Bologna til Ítalíu.
Emery ákveður að hvíla ekki menn fyrir baráttuna um meistaradeildarsæti sem er framundan í ensku úrvalsdeildinni og mætir til leiks með sitt sterkasta byrjunarlið. Douglas Luiz og Leon Bailey eru meðal varamanna og því hefur Emery góða kosti þegar tekur að líða á leikinn.
Heimamenn í Bologna mæta til leiks með sitt sterkasta byrjunarlið en eru með öfluga menn á bekknum á borð við Nicoló Cambiaghi, Riccardo Orsolini og Jens Odgaard.
Vítor Pereira þjálfari Forest mætir hins vegar til leiks með varaliðið til Porto þar sem einbeitingin er öll á úrvalsdeildinni. Forest er í óvæntri fallbaráttu þar og þarf á öllum sínum kröftum að halda í næstu leikjum. Forest er með ógnarsterkan varamannabekk gegn sterku liði Porto, sem inniheldur menn á borð við Gabri Veiga og brasilísku goðsögnina Thiago Silva.
Freiburg og Celta Vigo eigast við að lokum, en Real Betis og Braga eru einnig með í 8-liða úrslitunum og skildu þau jöfn í fyrri leik sínum sem fór fram í Portúgal í gærkvöldi.
Bologna: Ravaglia, J.Mario, Heggem, Lucumi, Miranda, Freuler, Pobega, Ferguson, Rowe, Bernardeschi, Castro
Varamenn: Cambiaghi, Orsolini, Zortea, Odgaard, Sohm, Casale, Castaldo, Moro, Franceschelli, Pessina
Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Torres, Digne, Onana, Tielemans, Rogers, McGinn, Buendia, Watkins
Varamenn: Abraham, Bailey, Bogarde, D.Luiz, Elliott, Garcia, Lindelöf, Maatsen, Mings, Bizot, Wright
FC Porto: D.Costa, Fernandes, Th.Silva, Bednarek, Zaidu, Fofana, Rosario, Veiga, W.Gomes, Sainz, Moffi
Varamenn: T.Silva, Varela, Prpic, Pepe, Moura, Mora, Kiwior, Gul, Froholdt, A.Costa, Ramos, J.Costa
Nott. Forest: Ortega, Dominguez, Abbott, Murillo, Morato, McAtee, Yates, Gibbs-White, Bakwa, Ndoye, Wood
Varamenn: Aina, Hudson-Odoi, Hutchinson, Jesus, Lucca, Milenkovic, Sangare, Hanks, Sinclair, Whitehall, Williams, Sels
Freiburg: Atubolu, Treu, Ginter, Lienhart, Makengo, Eggestein, Manzambi, Suzuki, Beste, Grifo, Matanovic
Celta Vigo: Radu, Mingueza, Rodriguez, Aidoo, Alonso, Carreira, Moriba, Sotelo, Jutgla, Swedberg, Iglesias




