Juventus horfir í möguleikann á því að fá Alisson Becker, markvörð Liverpool, í sínar raðir í sumar. Það er La Gazzetta dello Sport sem greinir frá.
Luciano Spalletti, stjóri Juventus, þekkir vel til Brasilíumannsins því þeir unnu saman hjá Roma tímabilið 2016/17.
Samkvæmt fréttaflutningi á Ítalíu er Alisson tilbúinn að ræða við Juventus en Liverpool nýtti sér nýlega eins árs framlengingarákvæði í samningi hans. Hann er samningsbundinn Liverpool til sumarsins 2027.

Juventus er sagt tilbúið að bjóða Alisson, sem er 33 ára, þriggja ára samning.
Alisson hefur spilað 332 leiki með Liverpool frá því að hann var keyptur á 67 milljónir punda frá Roma árið 2018. Hann hefur unnið átta titla, þar af úrvalsdeildina tvívegis og Meistaradeildina einu sinni.
Hann hefur misst af þremur síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla og hefur Giorgi Mamardashvili staðið vaktina í hans fjarveru.
Mattia Perin og Michele Di Gregorio berjast í dag um markvarðarstöðuna hjá Juventus.