Harry Maguire telur að þeir erfiðu kaflar sem hann fór í gegnum hjá Manchester United hefðu brotið marga leikmenn niður. Hann segir að hann hafi séð liðsfélaga sem hafi ekki höndlað pressuna og sviðsljósið hjá félaginu.
Maguire framlengdi á dögunum samning sinn við United út næsta tímabil, með möguleika á ári til viðbótar.
Maguire er 33 ára og er fyrrum fyrirliði liðsins en hann kom til United frá Leicester fyrir 80 milljónir punda 2019. Hann hefur spilað 266 leiki fyrir félagið og unnið FA-bikarinn og deildabikarinn.

„Ég hef séð marga leikmenn koma í félagið og það reynist of stórt fyrir þá. Augun sem eru á þér, gagnrýnin og allt krufið til mergjar. Hvert einasta mark sem liðið fær á sér, það er fundinn sökudólgur. Fyrrum leikmenn eru að fara að tala um þig. Þetta er hluti af því að spila fyrir félagið," segir Maguire.
Enn einn sá besti í heimi
Hann hefur tröllatrú á sjálfum sér og vonast til að vera í enska landsliðshópnum sem fer á HM í sumar.
„Ég þrái að fara með á mótið, sama hvaða hlutverk þjálfarinn vill að ég verði í. Hvort ég eigi að vera byrjunarliðsmaður eða leikmaður sem getur komið inná og hjálpað að ná úrslitum. Ég tel að það sé ekki nokkur spurning að ég er enn einn besti varnarmaður heims í báðum teigum. Það getur hjálpað mikið seint í leikjum, þegar þú ert að halda forystu eða reyna að breyta stöðunni. Ég tel mig geta verið í mikilvægu hlutverki."