Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
banner
   mán 27. apríl 2026 21:17
Alexander Tonini
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Guðjónsson og lærisveinar hans í FH þurfa að bíða lengur eftir fyrsta sigrinum í Bestu deild karla í ár þegar KR sigraði 4-2 á Meistarvöllum í kvöld.

"Þetta var frammistaða að okkar skapi, við vorum búnir að ræða um það fyrirfram að við vildum mæta inn í leikina að miklu meiri krafti. Hafa meiri sjálfstraust og trú á því sem við erum að gera og strákarnir voru að mörgu leyti mjög flottir", sagði Jóhannes Karl um spilamennsku liðsins

Lestu um leikinn: KR 4 -  2 FH

Úlfur Ágúst Björnsson var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu í sumar og fékk hann dauðafæri strax á fyrstu mínútu leiks en Halldór Snær í marki KR varði vel.

Hefði mark strax á fyrstu mínútu breytt leiknum?

"Já já auðvitað og við vorum kannski pínu klaufar. Við vitum það að KRingar eru góðir þegar þeir tapa boltanum og pressa aftur. Við ætluðum okkur að nýta það töluvert betur."

Á 18. mínútu leiks kom upp stórt atvik þegar Aron Sigurðarson braut á Róberti Huga en Arnar dómari beitti hagnaðarreglunni sem varð þó til þess að FH tapaði boltanum fljótt og fékk á sig mark sem kom heimamönnum í 2-1.

"Arnar (dómari) leyfir leiknum að fljóta og þeir taka af okkur boltann og bruna upp og skora. Auðvitað átti margt eftir að gerast, það voru komnir fimm sex leikmenn í kringum Robba (Róbert Hugi) og ég skil ekki alveg hagnaðinn í því augnabliki.

En vissi Jói að FH voru með boltann í heilar 6 sekúndur eftir að hagnaðarreglunni var beytt?

"Það er engin regla um það hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hann (Arnar dómari) beytir hagnaði. Hann má dæma á þetta hvenær sem er. Arnar hefði bara átt að meta stöðuna þannig að Róbert Hugi gat sáralítið gert í stöðunni með fullt af KRingum í kringum sig"

Nú eru einungis tveir dagar í að glugginn loki, ætlar FH að bæta við sig leikmönnum og þá hugsanlega Jóhannesi Kristni Bjarnasyni?

"Það er erfitt að nefna leikmenn sem eru samningsbundnir öðrum liðum, en við vitum alveg að það eru leikmenn í íslenskum liðum sem eru ósáttir. Við erum að skoða hvort að réttu týpurnar séu á lausu og vilja koma til okkar".

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner