Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Siggi um nýja Þórsvöllinn: Veltur aðeins á Akureyrarbæ
Mynd: Ármann Hinrik
Mynd: Ármann Hinrik
Þórsarar eru komnir með nýjan gervigrasvöll á félagssvæði sínu í Glerárhverfi á Akureyri. Það er komið gervigras á völlinn, hiti undir völlinn, flóðlýsing og von er á vallarklukkunni eftir rúma viku. Það er hins vegar ekki búið að ganga frá umhverfinu og því er ekki hægt að segja að völlurinn sé orðinn boðlegur fyrir leik í Bestu deildinni.

Þór byrjar tímabilið á tveimur útileikjum en fyrsti heimaleikur á að fara fram 23. apríl þegar Framarar koma í heimsókn.

Fótbolti.net ræddi við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara Þórs, í gær.

„Staðan á vellinum er góð, við ætlum að spila fyrsta heimaleik á vellinum. Það veltur aðeins á Akureyrarbæ og ég trúi ekki öðru en að Akureyrarbær standi sig í stykkinu með það, þeir (hjá bænum) hafa ekki verið þekktir fyrir annað. Það veltur svolítið á því að þeir græi þessa síðustu hluti. Þetta eru einhverjir gámar og eitthvað svoleiðis dóterí sem veldur því að það sé umræða um að við getum ekki spilað fyrsta leik þarna. En ég myndi segja að það sé nánast pottþétt að við spilum þar. Þetta veltur pínu á Akureyrarbæ og þeir eru þekktir fyrir að standa við sitt," sagði þjálfarinn.
Slapp
banner
banner