Níu tipparar voru með 13 rétta síðastliðinn laugardag á Enska getraunaseðlinum og fær hver þeirra í sinn hlut um og yfir 900 þúsund krónur. Grindvíkingar áttu tvo af seðlunum með 13 rétta en annars voru vinningshafar af suðurlandinu, úr Vogunum, Breiðholtinu, Kópavogi, Hafnarfirði og Akranesi.
Síðastliðinn miðvikudag var svo Mosfellingur með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum og fékk hann tæpar 3 milljónir í sinn hlut.
Þess má geta að það verður risapottur á Miðvikudagsseðlinum upp á 52 milljónir og á Sunnudagsseðlinum upp á 65 milljónir króna.
Athugasemdir



