Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
   þri 09. desember 2025 20:55
Brynjar Ingi Erluson
Maður leiksins og sá yngsti til að skora í þremur leikjum í röð
Mynd: EPA
Hinn 17 ára gamli Lennart Karl var valinn maður leiksins er Bayern München vann Sporting 3-1 í Meistaradeildinni í kvöld, en hann varð um leið sá yngsti í sögunni til að skora í þremur leikjum í röð í keppninni.

Karl skoraði annað mark Bayern sem kom liðinu í forystu eftir að hafa lent undir snemma í síðari hálfleiknum.

Þjóðverjinn hafði skorað í síðustu tveimur Meistaradeildarleikjum sínum og varð þá sá yngsti til að skora í þremur leikjum í röð í keppninni.

Sá hefur verið að njóta sín með Bæjurum í byrjun leiktíðar og komið að sjö mörkum í 21 leik.


Athugasemdir
banner